EKG (Hjartarafrit) framlengingarleiðsla
Öryggis-og notkunaratriði:
Notið ekki ef pakkning er sködduð eða hefur áður verið opnuð.
Viðvörun: Lesið vel allar viðvaranir, varúðarráðstafanir og
leiðbeiningar á fylgiseðli. Sé það ekki gert getur það valdið
djúklingum alvarlegum meiðslum eða dauða.
Breytið ekki leiðslunni við notkun.
Þjálfað starfsfólk skal framkvæma aðgerð með EKG
framlengingarleiðslunni og verður það að vera vel að sér í
líffærafræði, öruggri tækni og mögulegum fylgikvillum.
Ábending um notkun:
EKG framlengingarleiðslan gefur staðfestingu á staðsetningu
miðlægs æðaleggs með upplýsingum um rafl ífeðlisfræði hægri
gáttar.
Frábendingar:
Engar þekktar.
Viðvaranir og varúðarráðstafanir:*
1. Viðvörun: Sótthreinsað, einnota: Tækið má ekki nota
aftur, endurvinna eða endursæfa. Sé tækið notað aftur
skapar það möguleika á alvarlegu líkamstjóni og/eða
sýkingu sem geta leitt til dauða.
2. Viðvörun:
Vöktunarbúnaður
rafeinangraður og jarðtengdur.
3. Viðvörun: Hafi ð leiðsluna ekki tengda við leiðarvírinn
þegar hún er ekki tengd við vöktunarbúnað. Hætta á
rafl osti myndast þar sem rafstraumur á greiða leið að
sjúklingnum. Aftengið ávallt leiðarvírinn fyrst þegar EKG
framlengingarleiðslan er aftengd
4. Viðvörun: Vegna hættu á HIV-smiti eða öðrum
sjúkdómsvöldum með blóði skal heilbrigðisstarfsfólk alltaf
taka mið af gildandi varúðarráðstöfunum í tengslum við
blóð og aðra líkamsvökva við meðhöndlun sjúklinga.
Leiðbeinandi ferli:
Viðhafi ð smitgát.
1. a) fyrir örvar-holleggi 20 og 30 cm:
Setjið hollegginn í æðina með „yfi r-vírinn"-aðferðinni
sem sýnd er í leiðbeiningum frá framleiðanda. Þegar 1 cm
breiddarmerkið á leiðarvírnum kemur út úr tengi holleggsins
er „J-ið" á vírnum rétt utan við enda holleggsins.
b) fyrir örvar-holleggi 16 cm:
Setjið hollegginn í æðina með „yfi r-vírinn"-aðferðinni sem
sýnd er í leiðbeiningum frá framleiðanda. Þegar 32 cm
breiddarmerkið á leiðarvírnum kemur út úr tengi holleggsins
er „J-ið" á vírnum rétt utan við enda holleggsins.
c) fyrir örvarlausa holleggi:
Fylgið leiðbeiningum frá framleiðendum holleggsins og
leiðarvírsins.
2. Tengið leiðsluna við vöktunarbúnaðinn.
3. Engið krókódílaklemmu EKG framlengingarleiðslunnar við
leiðarvírinn við 1 cm breiða merkið.
4. Varúðarráðstafanir: Leyfi ð ekki leiðarvírnum að hreyfast
inn í hollegnum. Færið hollegginn og leiðarvírinn sem heild
þar til P-bylgja hjartarafritsins fer að stækka. Nú ætti endi
holleggsins að vera á mörkum holæðar og gáttar. Ef endanum
er ýtt lengra inn í hægri gáttina verður P-bylgjan annað hvort
jafn stór og R-bylgjan eða tvífasa.
Ef notaðir eru holleggir sem eru 16 cm eða styttri er hugsanlegt
að holleggurinn nái ekki til hægri gáttar og þá er aðeins hægt
verður
að
vera
vel
að nota þessa tækni til að ákvarða hvort holleggurinn snúi í
rétta átt. Tengið framlengingarleiðsluna eins og lýst er hér
fyrir ofan og ýtið hollegg og leiðarvír áfram sem heild. Þegar
P-bylgjan verður hærri en eðlilegt er, snýr holleggurinn í rétta átt.
5. Dragið hollegginn og leiðarvírinn sem heild 2-3 cm til baka
frá mörkum holæðar og gáttar. Í þessari stöðu ætti endinn að
vera í efri holæð.
6. Haldið holleggnum föstum á meðan leiðarvírinn er fjarlægður.
7. Haldið aðgerð áfram í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda.
*Ef það eru einhverjar spurningar eða ef óskað er eftir nánari
tilvísunargögnum, skal vinsamlega hafa samband við Arrow
International, Inc.
15