Öryggisleiðbeiningar
Lesa skal allar öryggisupplýsingar og
leiðbeiningar. Ef ekki er farið að í samræmi við
öryggisupplýsingar og leiðbeiningar getur það
haft í för með sér raflost, eldsvoða og/eða
alvarlegt líkamstjón.
Geyma skal allar öryggisupplýsingar og leiðbeiningar til
síðari nota.
Lesa og fylgja skal öryggisupplýsingum og
u
leiðbeiningum í öllum notendahandbókum fyrir
rafhjólskerfið sem og í notendahandbók rafhjólsins.
Þegar talað er um drifeiningu í þessari notendahandbók er
átt við allar upprunalegar Bosch-drifeiningar sem tilheyra
kynslóðinni the smart system.
Almennar upplýsingar
eShift felur í sér tengingu rafrænnar gírskiptingar við rafhjól
sem tilheyrir kynslóðinni the smart system.
Bosch eBike Systems
eShift með enviolo automatic+
(NuVinci optimized)
Með því að stilla inn æskilegan snúningshraða sveifar er skipt
sjálfkrafa í sem bestan gír miðað við hraðann hverju sinni.
eShift með hjólatölvunni Intuvia 100
Í hvert sinn sem skipt er um gír er gírinn sýndur í stutta stund
á skjánum.
Þar sem drifeiningin greinir skiptinguna og minnkar því
drifstuðninginn í stutta stund er einnig hægt að skipta um gír
hvenær sem er við álag eða í brekku.
Aðrar stillingar, t.d. fyrir æskilegan snúningshraða sveifar, er
hægt að velja í enviolo-appinu. Hægt er að sækja það á
vefsíðu framleiðanda skiptingarinnar.
eShift með hjólatölvunni Kiox 300/Kiox 500
Á NuVinci/enviolo-gírskiptingunni er hægt að breyta
æskilegum snúningshraða sveifar á ferð með
stjórnbúnaðinum.
Haltu valhnappinum á stjórnbúnaðinum inni í meira en 1 sek.
og veldu <eShift>.
Upplýsingar um útgáfu gírskiptingarinnar er að finna í
valmyndinni <Settings> → <My eBike> → <Components>.
Frekari upplýsingar er að finna í notendahandbók
stjórnbúnaðarins.
eShift með Rohloff E‑14
Speedhub 500/14
Með Rohloff Speedhub 500/14 er alltaf skipt um gír með
Speedhub-gírskiptinum.
Ef gírskiptinum er haldið inni skiptir kerfið fyrst um einn gír
og síðan um þrjá gíra í hverju skrefi þar til lægsta eða hæsta
gír er náð.
eShift með hjólatölvunni Intuvia 100
Í hvert sinn sem skipt er um gír er gírinn sýndur í stutta stund
á skjánum.
Þar sem drifeiningin greinir skiptinguna og minnkar því
drifstuðninginn í stutta stund er einnig hægt að skipta um gír
hvenær sem er við álag eða í brekku.
eShift með hjólatölvunni Kiox 300/Kiox 500
Gírinn er alltaf sýndur á upphafsskjánum. Ef önnur skjámynd
er opin er gírinn sýndur í stutta stund þegar skipt er um gír.
Þar sem drifeiningin greinir skiptinguna og minnkar því
drifstuðninginn í stutta stund er einnig hægt að skipta um gír
hvenær sem er við álag eða í brekku.
Íslenska – 1
0 275 007 3ES | (30.03.2023)