Hallde Vegetable Preparation Machine RG-300i Instrucciones De Uso página 38

Ocultar thumbs Ver también para Vegetable Preparation Machine RG-300i:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 19
SJÁLFMATARINN:
Er notaður til að skera hnöttótt matvæli eins og
kartöflur og lauk o.s.frv. stöðugt í miklu magni.
4-PÍPU MATARINN
Er notaður til að skera langar vörur eins og
gúrkur í sneiðar, sjá mynd.
SAMSETNING OG LOSUN
MATARAHÓLKURINN
Fellið niður læsihandfangið við samsetningu.
Rennið matarahólkinum inn í hjarafestingu á
vélinni og leggið hann niður á vélina.
Lokið læsihandfanginu.
Þegar fjarlægt er skal fyrst opna læsihand-
fangið og fjarlægja síðan matarahólkinn úr
hjarafestingum vélarinnar.
HANDSTÝRÐUR ÞRÝSTIMATARI
Ýtið á stöðvunarhnappinn.
Festið matarahólkinn eins og að ofan.
Grípið þrýstiplötuna með báðum höndum og
setjið öxulendann inn í gatið á vélinni.
Þrýstið niður handstýrða þrýstimataranum og
snúið honum rangsælis.
Við losun er öryggishælnum þrýst niður og
handstýrða þrýstimataranum snúið út réttsælis
til að losa hann.
4-PÍPU MATARINN
Ýtið inn stöðvunarhnappi vélarinnar.
Festið matarahólkinn eins og að ofan.
Setjið 4-pípu matarann í matarahólkinn og
öxulendann inn í gatið á vélinni.
Þrýstið niður 4-pípu mataranum og snúið
læsihnappnum rangsælis.
Við losun er læsihnappnum snúið réttsælis og
4-pípu matarinn fjarlægður.
MATARAHÓLKURINN FYRIR
SJÁLFMATARA
Rennið matarahólkinum inn í hjarafestingu á
vélinni og leggið hann niður á vélina.
Lokið læsihandfanginu.
Þegar fjarlægt er skal fyrst opna læsihand-
fangið og fjarlægja síðan matarahólkinn úr
hjarafestingum vélarinnar.
SJÁLFMATARINN
Ýtið inn stöðvunarhnappi vélarinnar.
Við uppsetningu, útbúið matarahólkinn að
innanverðu með tveimur stýringum.
Setjið sjálfmatarann í miðjan matarahólkinn,
og öxulendann inn í gatið á vélinni.
Þrýstið niður sjálfmataranum og snúið
læsihnappnum rangsælis.
Við losun er læsihnappnum snúið réttsælis og
sjálfmatarinn fjarlægður.
38
UPPSETNING
SKURÐARVERKFÆRIS OG
BAKKA
Þegar handstýrði matarinn er notaður, tryggið
að þrýstiplatan sé í efri stöðu og snúið mata-
ranum út til vinstri. Opnið síðan matarahólkinn
til hægri. Ef sjálfmatarinn er notaður skal fjar-
lægja sjálfmatarann og opna matarahólkinn
til hægri. Ef 4-pípu matarinn er notaður skal
fjarlægja 4-pípu matarann og opna matarhól-
kinn til hægri.
Ef nota á bakkann þá er frárásarskífan sett á
botn bakkans. Gangið úr skugga um að hnífa-
húsið hafi verið vandlega hreinsað. Bakkinn,
sem inniheldur frárásarskífuna, er síðan settur
utan um öxul hnífahúss vélarinnar. Snúið/ýtið
frárásarskífunni niður í tengingu sína.
Setjið valið skurðarverkfæri á öxulinn og snúið
því þar til það festist á sínum stað.
Þegar notuð er teningsskurðarrist eða frönsku
kartaflna rist: Setjið frárásarskífuna á botn
bakkans sem síðan er settur utan um öxul
hnífahúss vélarinnar. Snúið frárásarskífunni
niður í tengingu sína. Setjið síðan valda rist á
öxulinn og skurðarskífuna þar á eftir og tryggið
að þær festist rétt í stað.
Festið hræritækið þegar sjálfmatarinn er
notaður, lásboltann þegar 4-pípu matarinn
er notaður, eða kjarnahreinsibúnaðinn þegar
handstýrði matarinn er notaður, með því að
snúa þeim rangsælis með skrúflykli á miðju-
öxulinn á skurðarverkfærinu.
SKURÐARVERKFÆRI OG
BAKKI FJARLÆGÐ
Losið skrúftappann, borkrónuna eða læsi-
boltann réttsælis áður en lykillinn er notaður
og fjarlægið skurðarverkfærið/verkfærin og
frárásarskífuna ásamt bakkanum.
ÞRIF
Lesið allar leiðbeiningar áður byrjað er að
nota vélina.
FYRIR ÞRIF: Slökkvið ávallt á vélinni og takið
hana úr sambandi. Ef vélin er ekki með kló
skuluð þið slökkva á straumrofa. Fjarlægið alla
hluta sem má fjarlægja og á að þrífa.
ÞRIF Í UPPÞVOTTAVÉL: Alla hluta sem má
fjarlægja má setja í uppþvottavél.
HANDÞVOTTUR: Notið aðeins handuppþvot-
tasápu með lágt klórinnihald. Notið aldrei beitta
eða svarfandi hluti eins og hnífa eða ágeng
hreingerningarefni.
HREINSIEFNI: Notið burstann sem fylgdi
vélinni eða annan svipaðan til að þrífa
matarsvæðin. Hægt er að þrífa hníföxulinn
í miðri vélinni með litlum flöskubursta. Notið
rakan klút til að þrífa aðra hluta vélarinnar.
SÓTTHREINSUN: Notið ísóprópýlalkóhól
(65-70%). Ísóprópýlalkóhól er afar eldfimt svo
farið varlega þegar það er notað.
VIÐVÖRUN:
• Hellið hvorki né úðið vatni á hliðar vélarinnar.
• Notið ekki sjóðandi eða heitt vatn.
• Notið aldrei beitt verkfæri við þrif eða önnur
verkfæri sem ekki eru ætluð fyrir þrif.
• Notið ekki fægiefni.
FORÐIST: Notið ekki þvottasvampa með
ræstipúðum (t.d. Scotch-Brite™) nema það sé
algjörlega nauðsynlegt. Það ýfir yfirborðsfleti
svo þeir hrinda síður vatni frá sér.
RÁÐ FYRIR UMHIRÐU:
• Þrífið vélina strax eftir notkun.
• Þurrkið vélina strax eftir þrif til að forðast
oxun og upplitun á yfirborðsflötum.
BILANALEIT
Til að koma í veg fyrir tjón á vélinni er RG-400i
útbúin hitastýrðri mótorvörn sem slekkur
sjálfkrafa á vélinni ef hitastig hennar verður of
hátt. Hitastýrða mótorvörnin er með sjálfvirkri
endurstillingu, sem þýðir að hægt er að gang-
setja vélina aftur þegar hún hefur kólnað, sem
tekur yfirleitt 10-30 mínútur.
BILUN: Vélin fer ekki í gang eða stöðvast
meðan hún er í gangi og ekki er hægt að
endurræsa hana.
LAUSN: Gangið úr skugga um að klóin sé rétt
í innstungunni eða kveikið á aðalrofanum. Ýtið
á ræsingarhnappinn. Komið fyrir matarahólki
og matara samkvæmt leiðbeiningunum undir
„Samsetning". Gangið úr skugga um að allir
hlutar séu rétt festir og að öryggisarmurinn
sé uppi. Gangið úr skugga um að öryggi í
töfluskápnum séu í lagi og að þau séu af réttri
gerð. Bíðið í nokkrar mínútur og reynið svo að
gangsetja vélina aftur. Fari vélin enn ekki í gang
skal fá löggiltan fagmann til að skoða hana.
BILUN: Lítil vinnslugeta eða ófullnægjandi
árangur.
LAUSN: Gangið úr skugga um að rétt skurðar-
verkfæri eða rétt samsetning af skurðarverk-
færum sé notuð. Komið fyrir kjarnahreinsibú-
naði (handstýrður þrýstimatari, lásbolta (4-pípu
matari) eða hræritæki (sjálfmatari). Gangið úr
skugga um að hnífarnir og skurðarskífurnar
séu heilar og bíti vel. Þrýstið matnum niður
af minna afli.
BILUN: Ekki tekst að fjarlægja skurðarverkfæri.
LAUSN: Notið ávallt frárásarskífuna. Notið
þykkan leðurhanska eða öðruvísi hanska sem
hnífar skurðarverkfærisins skera ekki í gegnum
og losið skurðarverkfærið með því að snúa
því réttsælis.
BILUN: Ekki tekst að fjarlægja hræritæki,
lásbolta eða kjarnahreinsibúnað.
LAUSN: Notið skrúflykil til að losa það réttsælis.
HALLDE • User Instructions

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido